Það virðist fylgja mér að sanka að mér allskyns bleikum myndum, eða þar sem bleiki liturinn er a.m.k. í meirihluta:)
Hér er smá dæmi af desktopinu mínu…
Hopptimist í bleiku og bleikur Jamie Hayon vasi.
Skjalamappa frá HAY.
Bleikur stóll frá Muuto.
Skýjalaga bleikt teppi:) -Krúttlegt fyrir krakkaherbergið.
Hugmynd að mála skápahurðar í flottum lit.
Bleikir sófar.. þessi hér að ofan er frá Muuto.
Rúmföt frá Normann Copenhagen.
Án efa fallegasti liturinn af þeim öllum.
Ég kveð í bili úr veikindarbælinu, ég virðist nefnilega ætla að næla mér í allar umgangspestir sem í boði eru!
Ótrúlega hressandi… ég segi bara guð blessi Sex and the city á dögum sem þessum:)
-Svana
Skrifa Innlegg