Það er ein vara sem stóð uppúr á Ambiente sýningunni í dag en það var bílamotta í barnaherbergi frá danska merkinu Sebra. Sebra Interior er danskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir húsgögn og smávörur fyrir barnaherbergi. Fyrirtækið var stofnað af Miu Dela árið 2004. Í dag eru alls 14 hönnuðir sem hanna fyrir Sebra en samtals eiga þau 26 börn, því er hægt að segja að þau séu með puttann á púlsinum þegar kemur að góðri hönnun fyrir börn. Mjög minimalískt en skemmtilegt teppi sem mætti vel rata inní barnaherbergið!
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá sýningunni í Frankfurt sem ég tók,
Skrifa Innlegg