fbpx

BAÐDRAUMAR

Fyrir heimiliðHugmyndir

Mig dreymir þessa dagana um nýtt baðherbergi. Ég bið reyndar ekki um mikið, bara helst það að ég þurfi ekki að skammast mín fyrir það, svona eins og staðan er í dag…

Þessi flísalagði veggur er algjör draumur, að blanda saman mörgum ólíkum flísum en þó í svipuðum tón til að mynda fallega heild.

Listaverk á ólíklegum stað!

Þetta baðherbergi er fyrir lengra komna, en marmari á öllu er eitthvað sem ég mun leyfa mér að dreyma um í næsta lífi:)

Svart á hvítu klikkar seint.

Það er eitthvað við þetta baðherbergi, stílhreint og flott. Mig langar í svona stiga-handklæðastand, hafið þið rekist á slíkann í verslunum hér heima?

Það helsta sem ég get gert hér heima til að hressa upp á annars frekar sorglegt baðherbergi er að vera með fínt sturtuhengi, handklæði og smáhluti. Þetta hér að ofan er frá Ferm Living, ásamt stálgrindinni fínu.

:)

STELTON NÝTT

Skrifa Innlegg

14 Skilaboð

  1. Aldís

    12. March 2013

    Mamma mín fann rosalega fallegt handklæðahengi í góða hirðinum eða annarri eins second hand búð. Mjög flott! Eða á netinu..?

  2. Hildur systir

    12. March 2013

    Þu lætur Andres smíða svona handklæðastiga:) og gera einn fyrir mig í leiðinni

    • Svart á Hvítu

      12. March 2013

      Hahaha, já held það virki betur að þú spurjir hann! Ég er að suða í honum að smíða handa mér fataskáp:)

  3. Hanna Dóra

    12. March 2013

    Þú færð svona stigahillu í ILVU :)

      • Björg

        13. March 2013

        og í Tekk/Habitat í Garðabæ

  4. Renata

    13. March 2013

    Eg fekk minn stiga í Tekk húsinu :)

    • Aníta

      13. March 2013

      Jámm.. svona hilla fæst í Ilvu, en hún er ekki með handklæðastandi.
      Handklæðastand eða “stiga” hef ég t.d. séð í Tekk/Habitat ;)
      Finnst eins og ég hafi líka séð svoleiðis einhversstaðar annarsstaðar, en man ekki hvar.

  5. Hrund

    13. March 2013

    Fæst líka í Húsgagnahöllinni ;)

  6. Svart á Hvítu

    13. March 2013

    Mikið er nú gott að geta bara flett upp svona upplýsingum í ykkur! Taaaaaaaaaakk:) xxx