fbpx

STELTON NÝTT

HönnunÓskalistinn

Jiii núna fær hönnunarperrinn í mér alveg kitl í mallann.

Hinar klassísku Stelton kaffikönnur munu koma út í metal litum í vor! Gull, brons og silfur.

Ég sem er eiginlega nýbúin að eignast mína fyrstu…. en þessar eru svo gordjöss að ég gæti ekki sagt nei. Þarf að heyra í vinum mínum hjá epal hvenær þær verða pantaðar!

Hvaða týpa ætli verði fyrir valinu hmmm?

FINNSKA BÚÐIN

Skrifa Innlegg

16 Skilaboð

  1. Eva

    11. March 2013

    Neeee… Andrés á þessa sem var keypt um daginn. Þú átt alveg skilið að eiga þína eigin líka ;)

    • Svart á Hvítu

      11. March 2013

      Hahahah Eva, þarna komstu alveg með þetta!! En ég heppin að hafa ákveðið að gefa honum könnuna.. ætli ég geti þá fengið hann til að gefa mér eina svona haha:)

  2. Kristín

    12. March 2013

    Er e-r munur á stál sem er til núna og þessari silfur?

    • Svart á Hvítu

      12. March 2013

      Mér sýnist þessi vera meira glans? Er stálkannan ekki frekar mött?
      Þarf að kynna mér það betur:)

  3. Sigrún

    12. March 2013

    ég verð að fá svona!

  4. Katla

    12. March 2013

    Ég á stál heima en vá hvað ég væri til í þessa brons lituðu :)

  5. Sigríður Erla

    12. March 2013

    Beautiful! Mig langar í þessa í miðjunni. Hugsaðu þér hvað þú verður ánægð að eiga tvær í næsta afmælisboði Svana ;)

    • Svart á Hvítu

      12. March 2013

      Heldur betur! Lífsnauðsynlegt:)
      En ótrúlega skemmtilegt að þú sért komin með blogg, það er komið í blogghringinn minn:)
      -Svana

      • Sigríður Erla

        12. March 2013

        Takk kærlega fyrir það. Gaman að heyra :) Þitt er alltaf i jafn miklu uppáhaldi!

  6. Anna

    12. March 2013

    VÁ! MUST HAVE!!

  7. Kristbjörg Tinna

    12. March 2013

    VÁ!! Ef ég væri ekki sjúk í ErikBagger þá myndi ég fjárfesta í svona :)

  8. Hildur systir

    12. March 2013

    Brons:)

  9. Theodóra Mjöll

    12. March 2013

    Silfur!!!! Ekki það, ég elska þessar kaffikönnur útaf lífinu, en þá hellist kaffi ekkert sérstaklega úr þeim. Það sullast alltaf til hjá mér…..

    • Svart á Hvítu

      12. March 2013

      Ég hef ekki notað mína ennþá haha.. þarf að tékka á þessu.
      :) kveðja sú sem drekkur reyndar ekki kaffi.

  10. Hildur Jónsdóttir

    12. March 2013

    vá geðveikt – pant líka fá svona :)