fbpx

Aslaug Magnusdottir megapæja

Heimili
The Coveteur er stórskemmtileg síða þar sem að maður fær að gæjast inn í fataskápa hjá ofurflottum tískudrósum og drengjum.
En skyndilega rakst ég á íslenskt nafn á listanum.. Aslaug Magnusdottir?!

Daman á án efa einn flottasta fataskáp sem nokkur íslensk kona getur montað sig af. Hún er framkvæmdarstjóri og meðstofnandi af Moda Operandi sem er lúxus internetverslun. Fataskápurinn hennar samastendur af Matthew Williamson, MiuMiu og Givenchy svo fátt eitt sé nefnt, en samt aðallega Matthew Williamson sem er augljóslega í MIKLU uppáhaldi.
Mér finnst að svona flott íslensk kona eigi skilið að vera á forsíðu Fréttablaðsins allavega einu x í viku. Ef svona fataskápur er ekki fréttaefni, þá veit ég ekki hvað?

Draumur: Stelton könnur í húbbabúbbalitum

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Anna Margrét

    15. March 2011

    Hún er svo flott, ég er svo innilegur aðdáandi að ég held ég myndi, án gríns, biðja um eiginhandaráritun ef ég myndi hitta hana.

    Kúlisti!