fbpx

@ AMBIENTE

HönnunUmfjöllun

Ég er stödd þessa stundina á Ambiente vörusýningunni í Frankfurt! Eftir langan dag af labbi, -enda er sýningin ekki nema 578.000 fermetrar haldin í 11 höllum, þá er ég skriðin upp í rúm á fína hótelherberginu mínu. Þessi sýning er algjörlega frábær, og ég gæti í rauninni opnað verslun eftir þessa ferð mína, komin með lista af flottum vörum og margar sem enn fást ekki á Íslandi. Já, ef þú ert verslunareigandi þá er þetta sýningin sem má ekki fram hjá þér fara.

Screen Shot 2014-02-09 at 9.58.02 PM

Það er reyndar mjög mikilvægt að koma vel skipulagður annars endar þú í höll fullri af vörum sem þú kærir þig ekkert um að eyða tíma í að skoða. Hér er nefnilega allur skalinn, allt frá mjög ljótu yfir í æðislega flottar vörur frá virtum fyrirtækjum.

Screen Shot 2014-02-09 at 9.58.25 PM

IMG_8967

Myndavélin mín er stútfull af myndum, en mér sýnist ég hafa skilið myndavélasnúruna eftir heima, -því koma hér tvær fínar af símanum mínum. Það var sérstaklega gaman að hitta nokkra aðila í dag sem ég hef hitt áður og tekið viðtöl við, t.d. stofnanda Design House Stockholm, vin minn hann Anders Färdig.

IMG_9036IMG_9032

Það fer mér alveg afskaplega vel að rölta um ein á svona sýningum og slaka svo á ein uppi á hótelherbergi, það er svo mikilvægt að fá inná milli smá “me time” :)

Bestu kveðjur frá Frankfurt, Svana

 

Iittala & Menu á Ambiente

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Hildur systir

    9. February 2014

    Skemmtu þér súper vel hlakka til að sjá fleiri myndir

  2. Reykjavík Fashion Journal

    9. February 2014

    Hrikalega er ábyggilega gaman hjá þér! Njóttu þín vel yndisleg og mér finnst þeta frábær hugmynd með að þú farir að opna búð með merkjum sem fást ekki á Íslandi!! ;)***

    • Svart á Hvítu

      9. February 2014

      Hahahah þú ferð alltaf smá frammúr þér með hugmyndirnar;)

  3. Daníel Gauti

    9. February 2014

    góða skemmtun :) hlakka til að sjá meira :D

  4. Guðrún Vald.

    10. February 2014

    Oh mig hefur alltaf langað að fara á þessa sýningu en aldrei komið mér í það. Fórstu alveg ein út í þetta ævintýri?
    Ég hlakka til að sjá fleiri myndir.

  5. Áslaug Þorgeirs.

    10. February 2014

    Hafðu það gott & gaman dúllurass !

  6. Rósa

    10. February 2014

    Sammála Ernu ! opna búð ! :D