fbpx

30 ÁRA AFMÆLISVEISLAN

AfmæliHugmyndirPersónulegt

Um helgina hélt ég upp á þrítugsafmælið mitt og heppnaðist veislan svo vel að ég á til með að gera færslu um hana. Ég var búin að ákveða þema nokkrum vikum áður en ég mæli með því fyrir ykkur í partýhugleiðingum til að geta séð fyrir ykkur veisluna sem þið viljið og ákveða stemminguna útfrá því, þá er líka auðveldara að finna til skreytingar og veitingar sem passa við heildina. Ég ákvað að hafa tropical þema sem er alveg tilvalið á sumrin og er svo skemmtilegt. Ég pantaði flest allt skrautið að utan til að spara mér smá pening en það er svakalegur verðmunur á t.d. blöðrum hér heima og ég mun láta alla linka fylgja með neðar í færslunni.

Veitingarnar gerði ég flestar sjálf en ég viðurkenni að eldamennska er ekki mín sterka hlið og ég var því búin að ákveða að vera með nóg af mojito og makrónum því þá myndi allt hitt líta vel út sem það svo gerði, veitingarnar slógu allar í gegn. -Tek þær líka allar saman neðar í færslunni.

Hér má sjá smá moodboard sem ég byrjaði að setja saman löngu áður, svona er ég bara gerð mér finnst alveg agalega skemmtilegt að spá í skreytingum og finnst þær oft vanmetinn partur í veislum.

Þegar ég skoða þessar myndir í dag þá er þetta nánast alveg sami fílingur og ég var svo með en hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr sjálfu boðinu. Það sem ég pantaði að utan var fyrst og fremst bleikur flamingófugl (!) mögulega óþarfi en ég hef alveg hrikalega gaman af svona dóti, svo gylltar “Happy birthday” blöðrur ásamt risastórum “30” ára blöðrum, bleikar blöðrur, hvítar veifur og tropical laufblöð. Ég tek það fram að ég sendi mitt á vinkonu í UK sem sameinaði alla pakkana og sendi mér sem gjöf.
IMG_1389

Þetta var ekki matarboð en þó er alltaf gaman að geta boðið upp á veitingar til að enginn verði svangur. Það sem ég bauð upp á voru makrónur frá Ellu, tómatcrostini með þeyttum fetaost, ofur ljúffengt brauð ala mamma -uppskrift síðar því það báðu allir gestirnir um hana, lakkrískubba, döðlu og ólífupestó, ofnbakaðan brie með mango chutney og ostadisk með vínberjum, melónu og parmaskinku. Ásamt því var Mojito bolla, hvítvín og óáfengt fyrir óléttu vinkonurnar:)IMG_1383

Servíetturnar eru úr Söstrene Grene, dúkurinn frá Hay og litlu bleiku flamingóarnir eru úr Tiger

13493694_10154933399528332_889573948_o.png

Ég er búin að fá margar fyrirspurnir varðandi glasaskrautið sem heitir Bongó blíða en þetta er íslensk hönnun sem er því miður hætt í framleiðslu. Þetta fékkst í Spark design space fyrir nokkrum árum og mér áskotnaðist heill bunki af þessu fyrir 25 ára afmælið mitt og á þetta því ennþá til ofan í skúfffu. Algjörlega æðisleg hönnun sem mætti vel vera enn í sölu:)

IMG_1387 IMG_1390 IMG_1392

Veitingarnar gerði ég flestar sjálf en leyfði mér þó að kaupa makrónur til að setja punktinn yfir i-ið, mér þykja þær vera guðdómlega góðar og svo eru þær svo hrikalega fallegar á veisluborðið. Ég fékk mínar hjá Ellu franskar makrónur -þið finnið hana á facebook, en hafði heyrt mjög gott af þeim látið og þær voru algjört æði, og ég má til með að mæla með þeim! Ég valdi saltkaramellu, lakkrís og hindberja makrónur og fékk líka að velja litina. Mmmm ég er í alvöru ennþá að hugsa um þessar makrónur. Þær eru í raun líka tilvalin tækifærisgjöf, t.d. til að taka nokkrar með í matarboð og færa gestgjafanum:)

IMG_1394

Þegar leið á kvöldið urðu 30 blöðrurnar hin besta skemmtun og mjög fínt myndaprops en ég er ekki ennþá búin að taka niður veifurnar né blöðrurnar, finnst óvenju skemmtilegt að vinna heima þessa dagana;)

IMG_1396

Fyrir áhugasama þá er þessi geggjaði marmarabakki úr Kokku… ég elska hann í tætlur:) P.s. ég vil taka það fram vegna fyrirspurna að það er aðeins loft í mínum blöðrum enda er helíum gas alltof verðmætt til að eyða í blöðrur:)

IMG_1386

Eitt veisluráð sem ég fékk frá mömmu eftir veisluna var að skrifa niður allar veitingarnar, vínið og fjölda á gestum til að eiga til fyrir næstu veislu sem ég kem til með að halda, þá veit ég hvað hefði mátt fara betur og hvað hefði mátt vera til meira eða minna af. Fínt ráð fyrir okkur sem erum ekki þaulvanir partýhaldarar en ég lenti í miklum tímaþröng því ég var alveg búin að vanmeta tímann sem fór í undirbúning og þurftu því fyrstu gestirnir að klára að græja með mér ýmislegt. Mun klárlega skrifa það niður að byrja fyrr á næstu veislu til að hafa þá tíma til að gera sjálfa mig reddý og klára allar skreytingarnar sem ég ætlaði að búa til en náði svo ekki. Er annars mjög sátt með útkomuna og átti alveg magnað kvöld♡

Ef þið höfðuð gaman af færslunni megið þið endilega smella á like hnappinn hér að neðan eða skilja eftir nokkur orð, það er alltaf svo gaman að heyra í ykkur!

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111

TJÚLLUÐ ÚTSÝNISÍBÚÐ TIL SÖLU

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

21 Skilaboð

  1. Lára

    20. June 2016

    Makkarónurnar frá Ellu eru to die for !! Ég hef pantað frá henni nokkrum sinnum og þær slá alltaf í gegn :)

  2. Lára

    20. June 2016

    Og sjúklega flott veisluborð og flott þema !

  3. Karítas

    20. June 2016

    Vá! Æði – og til hamingju með afmælið ;)

    ps: finnst samt vanta mynd af afmælisdressinu úr ASOS ;)

    • Svart á Hvítu

      20. June 2016

      Hahaha ég endaði svo ekki í því var svo á haus þarna undir lokin því ég var svo sein að ég fór í gamlan kjól sem svíkur mig aldrei:)
      Hitt var svartur samfestingur og mega næs toppur undir sem fær að bíða betri tíma:)
      Takk fyrir kveðjuna!

  4. Karen Lind

    21. June 2016

    SVANA – HVAR ER UPPSKRIFTIN AF BRAUÐINU???

    Takk fyrir mig <3

  5. Steinunn Edda

    21. June 2016

    DÁSAMLEGA FALLEGT! x

  6. Auður Guðmunds

    21. June 2016

    Akkurat færslan sem mig vantaði í partý plönunum mínum :)

  7. Ísabella Guðmunds

    21. June 2016

    Hvar fekkstu blöðrurnar? Happy Birthday og 30 :)

  8. Hilda

    21. June 2016

    Geturðu gefið linkinn á flamingofuglinn?
    Þetta er æði hjá þér

    • Svart á Hvítu

      21. June 2016

      Ég fann hann hér: factorydirectcraft.com
      En hann virðist þó vera uppseldur því ég finn hann ekki aftur…
      Algjör tilviljun að ég verslaði þarna, var að skoða myndir í gegnum google:)

  9. sigridurr

    21. June 2016

    Vá! Svo falleg veisla, hefði óskað að ég hafði geta mætt xxxxx

  10. Hrund Ólafsdóttir

    23. June 2016

    Hæhó!

    Til hamingju og takk fyrir skemmtilega færslu <3 Mig langar ofsalega að vita uppskriftina hjá þér af Mojitobollunni :D

    Bestu kveðjur,
    Hrund.

    • Svart á Hvítu

      23. June 2016

      Hæhæ, takk fyrir:)
      úff ég kem að litlu gangi með uppskriftir, slumpa alltaf bara með svona bollur. Ég var reyndar núna með Bacardo Mojito bland sem er um 15%, og blandaði við bæði sódavatn, sprite og bætti svo rommi útí til að hafa nóg áfengi. Svo bara nóg af klökum, lime og myntu og hrásykurinn til að bragðbæta:)
      Þessi var amk óvenju góð:)

  11. Karen Andrea

    23. June 2016

    Vá hvað mér finnst þetta flott hjá þér og það var gaman að fylgjast með snappinu, til hamingju með 30 ára áfangan :)

    • Svart á Hvítu

      23. June 2016

      Takk fyrir kveðjuna! Jii fegin að heyra með snapchat, ég fékk nefnilega áfall þegar ég sá sumt sem rataði þangað inn sem vinkonur mínar tóku upp.. þurfti aðeins að ritskoða þetta eftirrá haha:)

  12. Linda

    23. June 2016

    Hæ, skálin sem jarðaberin og berin eru í, hvaðan er hún?

    • Svart á Hvítu

      23. June 2016

      Hæ, þetta er Feed me skálin sem Anna Þórunn hannaði, hún fæst t.d. í Epal, Snúrunni og Rökkurrós :)