Ef þið eruð ekki nú þegar að fylgja Angan Skincare á samfélagsmiðlum þá hvet ég ykkur eindregið með því að fylgjast með þessu íslenska, sjálfbæra og handgerða húðvörumerki sem er á hraðri uppleið. Í tilefni af 3 ára afmæli Angan stendur nú yfir gjafaleikur á Instagram @anganskincare þar sem hægt er að vinna dásamlegt maskadekur fyrir jólin.
Í samstarfi við Angan ætlum við að gefa aukavinning hér á blogginu og með því að skrifa athugasemd með nafni við þessa færslu ertu komin/n í pottinn! ♡
Gjöfin inniheldur nýju maskana frá Angan, Deep Ocean og Black Lava ásamt Ritual bursta og Ritual skál sem er hið fullkomna tól til þess að virkja maskana og blanda saman áður en borið er á andlitið.
“Markmið Angan er að vinna með náttúrunni og skapa einfaldar og áhrifaríkar húðvörur sem gefa húðinni raka, mýkt og dásamlegan angan.”
Skráðu þig eða vinkonu hér að neðan ♡
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg