Ég elska að skoða falleg heimili þar sem mikið er lagt í barnaherbergin og hér er einmitt slíkur heimilisdraumur á ferð – alla leið frá Berlín. Mikið hefur verið nostrað við hvert rými sem myndar þessa fallegu heild. Brúnir og gráir tónar einkenna heimilið ásamt þessum dásamlega skandinavíska stíl.
Kíkjum í heimsókn –
Barnarherbergið er uppáhalds herbergið mitt, sjáið hvað motturnar, veifurnar og rúmteppið gera herbergið hlýlegt og tala nú ekki um þetta krúttlega hús sem rúmið er byggt við. Miðað við litina á veggjunum bendir allt til þess að þetta séu tvö aðskilin herbergi en alveg jafn sjarmerandi.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg