Nýlega festum við fjölskyldan kaup á okkar fyrstu íbúð en eins og þið flest vitið fluttum við inn á foreldra mína í byrjun árs til þess að ná þessum áfanga, að geta lagt nógu anskoti mikið fyrir til að eiga fyrir útborgun í íbúð. Við vorum vissulega ekki að byrja á núllpunkti enda eigum við margra ára sambúð að baki en það vantaði uppá þennan herslumun sem er erfitt að ná þegar borga þarf háa leigu um hver mánaðarmót. Nýja heima er falleg og björt íbúð staðsett í gömlu hverfi hér í Hafnarfirðinum. Húsið þarfnast smá viðhalds en það er ekki mikið sem þarf að gera innandyra og ég er alveg bálskotin í þessu framtíðarheimili okkar – hér mun okkur líða vel ♡
Við erum ekki alveg strax að flytja inn – en ég kem til með að leyfa ykkur að fylgjast með og ég get ekki beðið eftir að gera þetta heimili að mínu eigin ♡
Skrifa Innlegg