Má bjóða ykkur að sjá lit ársins 2018 að mati Nordsjö sem er eitt af þekktari málningarfyrirtækjunum í Skandinavíu. Liturinn sem ber heitið Heart Wood er hlýlegur bleikur litur með smá gráum tón í og kemur mér ekkert á óvart að uppáhalds bleiki liturinn minn haldi áfram sigurför sinni um heiminn ♡
Myndir via Nordsjö
Eins og sjá má á þessum myndum er liturinn nokkuð fjölhæfur og hægt að nota á ólík rými og para saman við margar litapallettur. Ég er sérstaklega hrifin af bleika litnum á svefnherbergið og held það sé ekki annað hægt en að sofa vel þar. Fyrir áhugasama þá er Sérefni með umboðið fyrir Nordsjö á Íslandi en þar er einmitt hægt að fá Svönubleika litinn ♡
Skrifa Innlegg