Þar sem að ég er enn stödd í London og komin með vott af fráhvarfseinkennum frá syni mínum þá kemur ekkert annað til greina en að spá í barnaherbergjum í þessari færslu. Mig hefur lengi langað til að breyta barnaeldhúsi frá Ikea en það eru til ótrúlega margar skemmtilegar hugmyndir á netinu. Sonur minn fékk reyndar í láni krakkaeldhús frá frænkum sínum rétt fyrir jól en eins skemmtilegt og það er þá hentar það mínum smekk afskaplega illa í sínum fagurrauða lit og úr plasti. Viðareldhúsið frá Ikea heillar mig hinsvegar töluvert meira og því er auðveldlega hægt að breyta, vinsælar útfærslur hafa verið t.d. að setja filmu á borðplötuna, veggfóður á vegginn og sætar höldur sem takka á eldavélina en möguleikarnir eru endalausir eins og þið sjáið á myndunum hér að neðan.
Hversu krúttlegt er að vera með lítið krakkaeldhús í stíl við eldhúsið á heimilinu?
Ég er þegar búin að ákveða í hvernig stíl mig langar til að breyta eldhúsinu hans Bjarts, en þrátt fyrir að hafa ekki byrjað á verkinu er það næsta strax komið á dagskrá en það er leiktjald í herbergið! Hversu gaman væri nú að klára loksins þessi verkefni sem er búin að sitja á listanum í u.þ.b. ár:)
Skrifa Innlegg