fbpx

HÖNNUNARMARSINN MINN Í ÁR

Íslensk hönnun

HönnunarMarsinn minn í ár var ekki alveg jafn viðburðarríkur og síðustu ár, og ég get nú þegar litið yfir hátíðina og hvað ég hef séð þrátt fyrir að hún sé varla hafin! Þetta árið var ég fjölmiðlafulltrúi Epal í tengslum við HönnunarMars sem virðist ætla að vera fastur liður hjá mér í þessari hátíð en í fyrra tók ég einmitt að mér að vera fjölmiðlafulltrúi fyrir félag vöru og iðnhönnuða. Vikan hefur verið mjög strembin hjá mér svo ég er orðið afskaplega spennt að komast út í slökun hjá yndislegu Rakel minni í Cardiff. Þessar myndir sýna aðeins lítið brot af því sem sjá má á sýningunni í Epal í ár, en ég rétt náði að kíkja við áður en opnunin hófst! 

Í næstu færslu tekur hin frábæra Sigga Elefsen við blogginu og mun halda því á lífi þar til ég kem aftur tilbaka!

Góða skemmtun á HönnunarMars í ár og heyrumst eftir nokkra daga.

x Svana

HÖNNUNARMARS: MUST SEE

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Anonymous

    11. March 2015

    Spennandi, hlakka til að fylgjast með Siggu sætu