Heimilið hennar Lottu Agaton var að detta á sölu, -sjá hér. Ég hef lengi verið dálítið skotin í henni Lottu og eyddi einu sinni hálfum degi í Stokkhólmi í að leita af versluninni hennar bara til að komast að því að hún er bara opin á fimmtudögum! -Mæli með að kíkja þangað samt ef þið eruð á ferðinni í borginni:) Og ef þið eruð ekki þegar búin að uppgötva hana Lottu kíkið þá endilega á heimasíðuna hennar sem finna má hér. Heimilið hennar er að sjálfsögðu ægilega fínt en við höfum mörg hver áður séð heim til hennar, ég gat þó ekki annað en deilt þessum myndum með ykkur.
Svo fínt og lekkert!
Skrifa Innlegg