Helgin byrjaði vel hjá mér og ætlar svo sannarlega að enda vel líka. Tvær af mínum bestu vinkonum eiga afmæli 6 & 8 júní, og ég og systir mín eigum svo afmæli 8 & 9 júní. Ég bauð vinkonunum í Baðstofuna í tilefni afmælishelgarinnar okkar á föstudaginn og í dag eru tvö afmæli framundan, það er fátt sem toppar gott fólk og góðar veitingar:)
Eins og ég var búin að koma inn á áður þá er ég búin að gefa mér þangað til á morgun að koma öllu fyrir á nýja heimilinu. Það hefst vonandi, en Andrés var píndur fram á nótt að bora upp hillur fyrir mig og bera hluti fram og tilbaka. Ástæðan er sú að ég ætlaði að halda smá kaffiboð á morgun handa fjölskyldunni og vinkonum og mig langar ekki að fá fólk í heimsókn og þurfa að bjóða þeim sæti ofan á kössum, það er bara ekki alveg nógu lekkert. Síðustu dagar annars hafa verið mjög góðir á þessum nýja stað og þvílíkur draumur sem það er að hafa fengið vinnustofuna, -Andrés eyðir reyndar mjög miklum tíma þar inni og ég sé fyrir mér að þetta verði eins og með pabba… alltaf úti í bílskúr að vinna og ekkert heima. En í staðinn fæ ég þó hvít og fín garðhúsgögn sem hann er að spreyja fyrir mig og kommóðan langþráða klárast eftir örfáa daga:)
Hér eru tvær símamyndir af slotinu.
Til hægri má sjá glitta í skenkinn sem ég splæsti á okkur undir tv-ið (það er ástæða að ég klippi myndina þarna haha). Og eins og þið sjáið þá er ég að sjálfsögðu eftir að hengja upp allar myndir.
Ég bannaði Andrési að fara að sofa í gær fyrr en að þessi hilla væri komin upp ég var svo hrikalega spennt að fá að raða í hana:)
S & A glösin frá Design Letters gaf ég okkur í innflutningsgjöf, en mig var búið að langa lengi í þannig.
Vonandi hefur helgin ykkar verið ljúf og þvílíkur lúxus að það er einn dagur eftir!
-Svana
Skrifa Innlegg