Ég ætlaði að vera búin að sýna ykkur þessar myndir frá versluninni Insula á Skólavörðustíg fyrir alltof löngu síðan. En betra er seint en aldrei, svo hér koma þær:) Ég er ótrúlega hrifin af svona litlum sérverslunum og líður alltaf smá eins og ég sé í útlöndum þegar ég skoða vörur sem ég hef hvergi annars staðar rekist á.
Insula er rekin af innanhússhönnuðinum og smekkdömunni Auði Gná, hún er bæði með sérvörur hannaðar af sér t.d. þessa gullfallegu gærupúða ásamt töffaralegum tattoo viskastykkjum og tattoo púðum. -En verslunin er einmitt staðsett fyrir neðan tattoo stofu og deila þau sama inngang.
© Nanna Dís / nannadis.com
© Nanna Dís / nannadis.com
© Nanna Dís / nannadis.com
© Nanna Dís / nannadis.com
Loðnu gærupúðarnir eru eitt það fyrsta sem þú tekur eftir þegar komið er inn í verslunina og eru þeir ofarlega á mínum óskalista. Þeir eru 100% íslenskir og eru sérstaklega framleiddir fyrir verslunina undir nafninu Further North.
Myndirnar allar hér að ofan tók ljósmyndarinn: Nanna Dís / nannadis.com
Úrvalið í Insula er mjög áhugavert og öðruvísi.. hnífar, ilmvötn, púðar, keramik, myndlist og annað fallegt fyrir augað. Ég þarf einmitt að kíkja á hana aftur sem fyrst, er spennt að sjá allar nýjungarnar frá því síðast:) Hægt er að fylgjast með Insula á facebook hér
Ég mæli með rölti í miðbæinn og kíkja við í leiðinni á hana Auði Gná á Skólavörðustíginn í Insula, það er vel þess virði, þó ekki nema bara til að klappa þessum fallegu gærupúðum!
Skrifa Innlegg