Undanfarið hef ég fengið margar fyrirspurnir varðandi falleg barnaherbergi og ég verið beðin um að bæta þeim flokki við bloggið. Ég ætla að verða við þeim óskum, enda gífurlega margt fallegt í þeim flokki til að fjalla um:)
Einnig er ég ánægð að tilkynna skemmtilegt samstarf við netverslunina Petit.is sem ætla að bjóða lesendum Svart á hvítu 10% afslátt af öllum vörum sínum í heila viku, eða til 21.febrúar.
Það eina sem þarf að gera er að slá inn kóðann SVARTHVITU þegar þið ætlið að greiða fyrir vörurnar.
Petit.is er nýleg verslun á netinu sem býður upp á gott úrval af skandinavískum barnafatnaði og sérvöldum leikföngum og skreytingum fyrir barnaherbergið.
Vörumerkin sem Petit.is bjóða upp á eru t.d. Färg & Form Sweden, Mini Empire, Mini Rodini, OMM Design og Petter & Kajsa.
Munið kóðann: SVARTHVITU og njótið!:)
Skrifa Innlegg