fbpx

WHEEL OF NUTRITION

Íslensk hönnun

 Næringarhjólið er matardiskur sem hannaður er af Hafsteini Júlíussyni ásamt Rui Pereira, en diskurinn á að minna okkur á hvernig við eigum að borða rétt! Diskurinn sem framleiddur er í aldargömlu postulínsverksmiðjunni Porcel í Portúgal kemur í þremur gerðum: megrunar, venjulegur og ofurstór.

Mér finnst þessi hönnun vera sérstaklega skemmtileg svona eftir hátíðarnar og á tímum þegar að líkamsræktarstöðvar landsins fyllast og margir eru að reyna að taka sig á í matarræðinu;)

Það skemmtilega við diskinn er að þetta er ágætis áminning, þó að ekki sé alltaf borðað eftir réttum hlutföllum og jafnvel þó diskurinn endi sem skrautmunur uppá hillu!

Virkilega skemmtileg hönnun!

:)

GLERKÚPLAR

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Dagný Bjorg

    17. January 2013

    Fékk þennan í jólagjöf og hann prýðir hilluna inni í borðstofu hjá mér :)

  2. Sigga

    17. January 2013

    Er bara hægt að kaupa þennan á netinu : )?

    • Svart á Hvítu

      17. January 2013

      Nei hann fæst í nokkrum verslunum hér heima… Kraum, Epal, Hrím… ég er pottþétt að gleyma einhverri verslun:)

      • Karitas

        22. January 2013

        Og Mýrinni Kringlunni.