fbpx

UPPÁHALDSHLUTIR HAFDÍSAR

Síðasta tölublað Nude Magazine var mjög flott (þið sem ekki hafið séð það ennþá getið nálgast það hér) -við höfum ákveðið að birta líka efni úr blöðunum á Nude Magazine vefsíðunni sem finna má hér. Í gær birtum við greinina “Uppáhaldshlutir Hafdísar”, en Hafdís Hilmarsdóttir er einstaklega mikil smekkdama sem búsett er ásamt fjölskyldu sinni í Horsens í Danmörku þar sem hún stundar nám í innanhússhönnun. Mér var upphaflega bent á Hafdísi þar sem að instagram-síðan hennar hafði vakið athygli vinkonu minnar og mikið er ég fegin að hafa fengið þá ábendingu því að ég gjörsamlega elska heimilið hennar:)

hh_mynd0_stofa5

Þið finnið viðtalið hér ásamt fleiri myndum, og svo mæli ég líka með að fylgja henni á instagram!:)

PS. einn af þessum fínu hlutum sem sjá má í stofunni hjá Hafdísi verður hægt að vinna í instagram-leik sem fer í gang seinna í dag, fylgist með!

*Update: Leikurinn fer í gang á morgun:)

:)

TÍSKA: UPPÁHALDS INSTAGRAM

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Thorunn

    1. July 2014

    Vá fínt- gæti vel hugsað mér að flytja inn til hennar :)

  2. Ellen

    1. July 2014

    Veistu nokkuð hvar er hægt að fá svipað (eða samskonar) stofuborð?

    • Svart á Hvítu

      1. July 2014

      Þetta er allavega frá Normann Copenhagen og heitir Tablo… mér dettur ekkert álíka í hug þesa stundina, en þetta fæst amk í Epal ef þú hefur áhuga:)
      -Svana

  3. Lísa

    2. July 2014

    Veistu kannski hvar er hægt að fá þennan sófa ? :)