fbpx

Uniform Project

Umfjöllun
Fyrir löngu löngu þá bloggaði ég um hana Sheenu sem er með the Uniform Project í gangi, en þar klæðist hún einum kjól í heilt ár eða 365 daga! Reyndar á hún nokkra eins kjóla svo hún fari nú ekki að anga illa en verkefnið er til styrktar barna á Indlandi til að borga undir nám fyrir þau.
Eftir að ég rakst fyrst á þessa síðu veit ég að mamma mín skoðar síðuna hennar á HVERJUM degi:) Enda er hægt að fá frábærar hugmyndir af henni. Það eina sem þarf er bara einn basic svartur kjóll og svo er greinilega hægt að poppa hann upp á 365 vegu.
Ástæðan að ég ákvað að minnast aftur á hana er að í fyrradag minntist hún á okkar ástkæra Eyjafjallajökul og fékk innblástur dagsins frá gosinu:)
Hérna er myndin:)
Æj hún er svo sæt.
Mæli svo með að fylgjast með henni það sem eftir er, en í maí þá er komið ár síðan verkefnið hófst!
-S

Just chilling

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Anonymous

    23. April 2010

    BIG LIKE !!

    uns

  2. inga

    24. April 2010

    var hún ekki ´djúpulauginni í gær eða er hún bara lík henni híhí??

  3. Svana

    24. April 2010

    Hahaha djúpu lauginni??? Það stórefast ég um:)
    Ég horfi reyndar aldrei á þann þátt samt