Trendnet hefur verið að fá ágætis fjölmiðlaumfjöllun, en ég rak augun alltaf í setninguna -tískubloggarar sameinast- … Því að ég hef hingað til aldrei skilgreint sjálfa mig sem einn slíkann.. hönnunar.. heimilis…lífstíls… já takk en tísku ehhh?
Ég hugsaði þetta síðan til enda, og að sjálfsögðu eltum við líka tískustrauma þegar kemur að heimilinu okkar, við verslum ný húsgögn eða kaupum gjafir handa vinum. Og ég sjálf er eflaust fremst í flokki þegar kemur að slíku. Tískan fer þó hægari hringi þegar kemur að heimili og hönnun og því ætti einmitt að vera allt í lagi að leyfa sér stundum fínni hluti því það líða eflaust nokkur ár þar til að þú færð alveg nóg og vilt breyta til.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af því sem mér þykir vera afar smart þessa stundina.. tíska eður ei?
Vinnuaðstaða á búkkum. Eða bara búkkar yfir höfuð!
Innrömmuð ‘kvót’
Opnar hillur, ekki loka allt inní skáp, sérstaklega ekki falleg skópör:)
Mixa stólum.. það er ekki að fara að verða þreytt:)
Hengja fallegar flíkur upp til sýnis.. mmmjög falleg hugmynd
Kveðja “tísku”bloggarinn
ps. Ég tók eftir því í gær að eftir að gömlu bloggin mín voru færð hingað af blogspot birtust nokkrir póstar sem ég var eftir að klára t.d einn sem hét -röndótt+kisi- haha ef einhver ykkar tók eftir því og hugsaði bara uhh hvað á þetta að vera um.. þá er ég búin að eyða flestum þeim út.
OG ef þið hafið e-r ábendingar um eitthvað sem betur má fara, sérstaklega fastalesendur sem sjá þá allra best muninn á nýja blogginu og gamla, þá væri gaman að heyra frá ykkur.
Skrifa Innlegg