fbpx

TIPS: AÐ BÚA UM RÚMIÐ EINS OG Á HÓTELI

Ráð fyrir heimiliðSvefnherbergi

Ég rakst á svo sniðuga mynd sem sýnir hvernig búa eigi um rúm eins og gert er á hótelum að ég verð hreinlega að deila henni með ykkur. Ég viðurkenni þó að ég bý alltof sjaldan um rúmið mitt en þó er ég mjög hrifin af þessum tipsum hér að neðan hvernig hægt er að raða koddum og skrautpúðum á marga vegu. Það er að sjálfsögðu engin ein rétt leið og þetta snýst bara um hvað þér þykir fallegast og hversu mörgum púðum þú munt nenna að raða á morgnanna! pillow-diagram-queen-574x680d061e80bafefd73d6f74a6ab0e01e682

Til að toppa lúkkið er síðan annað léttara teppi eða gæra lögð á rúmið til fóta, oftast ofan á rúmteppið sjálft en það kemur þó líka vel út sérstaklega þegar sængin er tvöföld að brjóta teppi saman til hálfs og leggja til fóta ofan á sængina. Kíkið á video-ið neðst í færslunni til að sjá hvernig.

405b49d66b8499e4c6d60f9644f75752 49538a13390f73f6d61b581e2ff7ad0bSFDA34E91B53897464BADFEBD487D7F1767 a752e66f60dd7fb54937bafa768fb9e5

Svo fyrir þá sem vilja fara alla leið þá eru líka sérstakar leiðir hvernig ganga eigi frá lakinu og ég fann heilann helling af video-um á Youtube sem kenna hvernig eigi að “búa um hið fullkomna rúm”. Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt! Ég mun pottþétt nýta mér þessi tips… kannski þegar sonurinn flytur að heiman haha, ég mun þó a.m.k. nota einföldustu leiðina:)

[youtube http://www.youtube.com/watch?v=5DfGpCCFfWU]

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111

AFMÆLISGJÖF KOKKU

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

9 Skilaboð

  1. Karen Lind

    9. May 2016

    skemmtilegt! hvar kaupi ég falleg rúmteppi vinan?

    • Kamilla

      9. May 2016

      Snúrunni! Yndislega falleg rúmteppi þar!

    • Svart á Hvítu

      10. May 2016

      Þyrfti bara að setja saman færslu um það… HAY dots eru klassík, og svo er Snúran líka með mjög flott:)

  2. Margrét

    9. May 2016

    Er í sömu hugleiðingum, vantar svo að vita hvar ég kaupi falleg rúmteppi og rúmgafla?

  3. Kamilla

    9. May 2016

    Snúrunni! Yndislega falleg rúmteppi þar!

  4. Fatou

    11. May 2016

    Breytti strax um á rúminu eftir að ég las þessa færslu enda löngu kominn tími á nýjar hugmyndir!

  5. Arnór

    16. May 2016

    Hvers vegna í ósköpunum að setja 3 lök á sama rúmið?!