fbpx

TÍMARITIN

Fyrir heimiliðHugmyndir

Mér finnst eitthvað vera svo heillandi við tímaritastafla, ég er sjálf með nokkra hér heima .. en sem starfsmaður stærsta útgefanda tímarita hér heima kem ég alltof oft með ný tímarit heim (held samt bara eftir 3 af 9), ásamt því að ég kaupi mér sjálf nokkur í mánuði. Ég vil helst hafa þau öll uppivið svo það er auðvelt að grípa í eitt gamalt og gott uppi í sófa eða á meðan ég borða kvöldmatinn. 

Það er góð hugmynd að koma þessum bunkum í notkun, t.d. skella borðplötu ofan á og nota sem stofuborð, einnig er hægt að strengja belti utanum og nota sem hliðarborð eða náttborð? Verst þætti mér reyndar að setja þau undir borðplötu og komast sjaldnar í þau.. En þá væri að sjálfsögðu möst að nota glerplötu… og flottasta forsíðan færi efst! Díses hvað það er fín hugmynd:)

Þetta fína tímarit var einmitt að koma úr prentaranum og kemur í verslanir á morgun (ef veður leyfir).

Ég er SJÚK í þessa forsíðu:)

P.S. Mig langar að bjóða ykkur að finna Svart á hvítu á facebook HÉR til að fá allt það nýjasta beint í æð:)

 :)

AGENT BAUER

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Kristbjörg Tinna

    7. March 2013

    Burt séð frá fallegum blaðastöflum þá finnst mér parketið á efstu myndinni óskaplega fallegt :) Ásamt forsíðunni á blaðinu!! Hlakka svakalega til að lesa :D

  2. Svart á Hvítu

    7. March 2013

    Já sammála með parketið, þetta er víst það allra heitasta í dag.. Fiskbeinamynstrað parket!:)

  3. Björk

    7. March 2013

    Hæ,
    Hvað heitir hillan á mynd 2, mannstu það ? :)