fbpx

TALIÐ NIÐUR Í HÖNNUNARMARS

EldhúsPersónulegt

Ég er búin að slá met í því að birta myndir héðan heima í vikunni og hef einnig verið ansi virk á instagram sem var markmið sem ég setti mér nýlega, ykkur er velkomið að fylgjast með þar @svana_  Það styttist í HönnunarMars sem byrjar í næstu viku og ég er búin að vera að undirbúa mig undir mikla vinnutörn sem felst í því, nóg af spennandi sýningum til að sjá ásamt viðtölum og greinum sem ég þarf að skrifa, ég kem að sjálfsögðu til með að segja ykkur frá öllu því besta.

Helgin verður því tekin í smá slökun til að safna orku fyrir stuðið í næstu viku, ég vona að þið séuð orðin spennt fyrir HönnunarMars í ár, dagskrána má sjá hér á netinu. Hátíðin stendur frá 10.-13.mars þrátt fyrir að einhverjar sýningar taki smá forskot á sæluna og opni á miðvikudaginn. -Meira um það síðar!

12822873_10154597241508332_117022472_o

P.s. þið megið endilega smella á like hnappinn eða hjartað ef þið viljið að ég haldi áfram að birta myndir héðan heima:)

Eigið ljúfa helgi!

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111

VORHREINGERNING

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Hanna Björg

    9. March 2016

    Sæl. Myndir þú vera svo sæt að birta myndir af hillunum þínum í eldhúsinu og heildarrýminu. Það birtust nokkrar myndir í Home magazine, en þær eru bara af uppstillingum. Væri gott að fá heildarrýmismyndir:)

  2. Anna

    28. April 2016

    Sæl, ekki mætti ég forvitnast og sp. hvar þú fékkst þetta sem er hangandi á veggnum hjá þér :) ?

    • Svart á Hvítu

      28. April 2016

      Hæhæ, þetta er Sasa klukka eftir Þórunni Árnadóttur, ég fékk hana í Spark design space fyrir mörgum árum síðan, en því miður er klukkan að öllum líkindum að hætta í framleiðslu:/