Ég er enn að skipuleggja heimilið mitt, og sé fram á að klára fyrir jól með þessu áframhaldi.
Ég ákvað að búa til smá geymslu/vinnuaðstöðu hér heima, en svefnherbergið sem er L-laga og mjög rúmgott bauð uppá smá útfærslur. Ég hengdi upp fatahengi í loftið til að skipta þessu niður í 2 parta og kom bara ágætlega út. (myndir inn þegar kassarnir eru orðnir tómir.)
Þetta eru vinir mínir KASETT frá Ikea.. þeir eru mjög sigurstranglegir þessa stundina, en ætla að gera mér aðra ferð í vikunni. Loksin er sófaáklæðið mitt komið til landsins, en það var uppselt. En þá er sófinn sjálfur orðinn uppseldur (týpískt ég) haha. Sófakúr er bara sett á hold í 4 vikur max. Góðir hlutir gerast hægt:)
ps. ég er að breytast í einhvern skipulagsperra!
Skrifa Innlegg