Þessi yndisfagra klukka kom fyrir jólin í Spark, Sasa clock eftir Þórunni Árnadóttur vöruhönnuð.
Klukkan hvetur þig til að slaka á og leyfa tímanum að líða,
Á meðan að hjólið snýst hægt og rólega dettur perla niður á 5 mínútna fresti.
Hver perla táknar 5 mínútur
Og hvít perla táknar klukkutíma,
Gyllta og silfur perlan táknar miðnætti og hádegi og til að vita hvað klukkan er þarftu að finna aðra hvora perluna og telja frá henni klukkutímana og svo mínúturnar.
Falleg íslensk hönnun!
Skrifa Innlegg