fbpx

SÆNSKT & FALLEGT

Heimili

Ég er komin aftur heim eftir langþráð frí með tilheyrandi blankheitum, nýjum freknum og ótrúlega góðum minningum. Ég leyfði mér líka þann lúxus að fá mér frí frá öllu því sem tilheyrir internetinu og kem því endurnærð tilbaka til að sinna blogginu og öðrum verkefnum. Stundum verður jú bara að ýta á pásu:)

Hér er eitt gullfallegt heimili sem að mig langar að deila með ykkur, en það sá ég á vefsíðu  Nordic style mag, en kemur það upphaflega frá sænsku fasteignasölunni Stadshem. Það er eitthvað einstaklega róandi við litapallettuna sem er hvít, brún, svört og fölbleik og margar fallegar hugmyndir er að finna þarna. Takið sérstaklega vel eftir múrsteinaveggnum sem hefur verið opnað að á einum stað, ásamt viðarveggfóðrinu og scrapwood borðinu eftir Piet Hein Eek í eldhúsinu. -Svo fallegt!

Hvernig finnst ykkur þetta heimili?

RÓLEGHEIT

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Sveinbjörg

    8. May 2013

    Hrikalega flott :) sérstaklega gluggarnir og svo viðarveggurinn í eldhúsinu!

  2. Ásthildur

    8. May 2013

    Ómæ það er æði! Lítirnir róandi og hentar bæði inn í sumarið og veturinn. Ekki skemmir fyrir að það er staðsett í Svíþjóð, þarna gæti ég sko alveg hugsað mér að búa!

  3. Erla

    12. May 2013

    Dásamlega fallegt. Gluggarnir eru dásamlega flottir! Æðisleg þessi sænsku gömlu hús :)