fbpx

recycle or die

Íslensk hönnun
Í dag sá ég fallegasta jakka sem ég hef augum litið.
og hann hvíslaði að mér…. “ptzzz keyptu mig, ég lofa að halda á þér hlýju í allann vetur”
ó jiminn ef ég bara hefði haft á mér 69þúsund krónur í vasanum!
úff, það er orðið sárt hvað falleg föt eru of dýr fyrir minn vasa.
En ég hefði viljað taka með heim alla búðina, svo fallegar eru flíkurnar.
Ég ákvað að ég hefði þó efni á því að skoða og fann því þessar flottu myndir á heimasíðunni þeirra, því miður engin mynd af jakkanum flotta.
p.s myndirnar þeirra eru allar mega sega flottar
Inná heimasíðunni þeirra er svo skemmtilegt albúm sem heitir Musicians wearing Aftur
Jónsi uppáhaldið mitt
Og svo hún Björk okkar..
Þau eru bæði hrifin af Aftur
-S

endurnýting..

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Anna Margrét

    8. October 2010

    Ég elska Aftur. Það er án efa uppáhalds íslenska merkið mitt. Ég fæ ekki nóg af þeim. Ég verð eiginlega flissandi smákrakki þegar ég labba inní búðina þeirra, allt er svo ótrúlega flott og fallegt og þær eru svo kúl að ég fæ illt í tennurnar (það hefur gerst…true stoy)
    Ég á eina flík frá þeim, dýrasta sem ég hef keypt á ævi minni, en vá eftir 2 ár og 2.000.000 + notkun þykir mér ennþá vænt um hana og fæ ekki leið á henni, sem er pínu spes því þetta er apríkósu bleik, síð ullarslá. Kannski ekki klassískasta sem hægt er að fá sér en þessi er alltaf best.
    Ég mæli með að fara og kíkja á fötin, eins og að fara á listasafn. (vá ég er mikill perri, æi þið fattið mig þegar þið sjáið fötin….) :-))