fbpx

PLAGÖT

Fyrir heimiliðHugmyndirVeggspjöld

Ég er að missa mig þessa dagana yfir hvítu tómu veggjunum hér heima og þar sem buddan bíður ekki upp á listaverkakaup þá verður plagat fyrir valinu. Hér að neðan eru nokkrar netverslanir sem selja skemmtileg plagöt, njóttu!

Plagöt hinnar sænsku Therese Sennerholt eru efst á lista hjá mér en þau eru afskaplega falleg.

One must dash er líka með nokkur flott.

Mimis cirkus er með krúttleg plagöt í boði, t.d. þessi tvö..

Mokkasin er neð nokkuð fjölbreytt úrval, og mörg virkilega flott: 

Á síðunni Isa Form fann ég mörg plagöt, mörg ekki svo spennandi.. en nokkur virkilega góð

RKdesign er með töff plagöt en er þó því miður lokuð fram yfir áramót, kom mér á óvart.

  Mér var síðan bent á síðuna Society6 af lesanda en þar hefði ég getað gleymt mér í allt kvöld. Þvílíkt falleg plagöt í boði þar,

Ég ætla að stoppa núna áður en þessi færsla verður alltof löng, en ég set inn fleiri á morgun:)

FYRIR VEGGI

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Tinna

    4. December 2012

    Ég keypti mér plakatið með byssunum og eitt annað voða sætt með mynd af babúsku frá henni Jóhönnu Gartmyr sem er með síðuna aprillaprill.se. Hún gerir æðisleg plaktöt og er líka farin að láta prenta myndir á diska. Hún var snögg að senda þetta og þetta var ekki dýrt hjá henni.

  2. Hanna

    5. December 2012

    Er að spá í að kaupa af society6 síðunni og er að reyna að finna út hver tollurinn sé, veit einhver undir hvað þetta flokkast?