fbpx

NÝTT: HRÍM ELDHÚS OPNAR

BúðirEldhúsHönnun

Ég kíkti í dag á opnun hjá Hrím Eldhúsi á Laugarveginum, gamla búðin er þó enn á sínum stað, nýja verslunin er örlítið ofar á Laugarveginum. Ég ákvað að taka nokkrar myndir til að deila með ykkur, ég var nefnilega mjög heilluð af úrvalinu og reyndar líka af hönnun verslunarinnar. Þetta er skemmtilegt verslunarrými sem hefur aldeilis ekki fengið að njóta sín sem skyldi hingað til. Tinna Brá eigandi Hrím er reyndar menntuð í arkitektúr og var því eflaust ekki lengi að redda málum!

IMG_9293

Verslunin er skemmtilega uppsett, og dálítill eldhúsfílingur í gangi, sem er reyndar eðlilegt í ljósi þess að áherslan í vöruúrvalinu eru eldhúsvörur:)

IMG_9220-620x930

Ég er ótrúlega hrifin af þeirri hugmynd að setja upp eldhús í búðinni til að sýna vörurnar. Og eigum við eitthvað að ræða þennan draumaísskáp?

IMG_9226IMG_9276

Hvítu pottana frá Dansk Falcon mun ég eignast einn daginn, gamaldags emeleraðir stálpottar sem er nýhafið framleiðslu á aftur. Það sem mér finnst skemmtilegast við þá er að hægt er að nota lokið sem hitaplatta og leggja pottinn beint á borð!

IMG_9227

Nóg að kopar fyrir koparsjúklinga eins og mig:)
IMG_9222

Flott hugmynd af pottaslá…

IMG_9228

Krúttlegir diskar og staflanlegir bollar frá Jimbo art.

IMG_9230

Það er hægt að finna þennan ísskáp í myrkri!

IMG_9231

Eldhúskrókurinn:)

IMG_9241IMG_9247

Það mátti alveg sjá marmara á víð og dreif í Hrím, -þó helst á veggjum!

IMG_9249

Þessir herramenn buðu mér upp á ljúffengt súkkulaði frá Omnom.

IMG_9251

Enn meiri kopar!

IMG_9252IMG_9238IMG_9260

Ég hefði keypt mér þetta viðarský, en ég var of snemma á ferðinni og varan ekki komin inn í kerfið:) Það er þá bara afsökun til að kíkja við aftur.

IMG_9262Mottumars-rör:)

Meðal merkja sem munu fást í Hrím Eldhús eru: Seletti, Ferm Living, Brita Sweden, Opinel, Baumalau, Sabre, Helt honey, Almedahls, Orrefors, Kosta Boda, Sagaform, Thornback & Peel, Stelton, Designhouse Stockholm, Jimbobart, House of Rym, OYOY, SMEG, Are Chocolate og Dansk Falcon.

Ég mæli með að kíkja við, ég lofa að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum:)

NUDE MAGAZINE STÆKKAR

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Pattra S.

    20. March 2014

    En sú fegurð!!

  2. Arna

    21. March 2014

    Hvert er verðið á hvítu dansk falcon pottunum hjá þeim?

    • Svart á Hvítu

      21. March 2014

      úff ég man það ómögulega, minnir að það hafi farið yfir 20þús

  3. Kristbjörg Tinna

    21. March 2014

    Sé glitta þarna í drauma blómavasann minn!! Ég hlakka ekkert lítið til að kíkja við :)

  4. Oh það var svo leiðinlegt að missa af opnuninni! Sérstaklega verandi starfsmaður hjá Hrím Hönnunarhús… En ég mun klárlega kíkja við mjög fljótlega.

  5. Inga Lísa

    31. March 2014

    Hæ hæ. Veistu eitthvað um hvítu vírahilluna sem þau eru með þarna á display í búðinni … hún er t.d. á myndinni af herramönnunum með omnommið. Bak við þá:) ?

    • Svart á Hvítu

      31. March 2014

      Hæhæ, já þetta eru String hillur og fást í Epal hér á Íslandi:)