fbpx

NÝTT FRÁ TULIPOP

Íslensk hönnunVeggspjöld

Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop var að hefja sölu á flottum stafrófsplakötum sem eru tilvalin í barnaherbergið. Plakötin koma í tveimur litum, ljós gulum og svörtum og eru í stærð 50×70 cm.

Verðið á þeim er 2400 kr. en það er sérstakt kynningarverð út morgundaginn á 1900 kr, en hægt er að versla þau hjá Tulipop, Hverfisgötu 39, 101 Rvk. :)

Áfram íslenskt!

*Update! tilboðið var framlengt fyrir þá sem misstu af og stendur því út vikuna 8-12 júlí:)

SUMAR&SÓL

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Ragga

    5. July 2013

    Hæhæ

    Veistu nokkuð hvenær það er opið hjá þeim ? Kom við í hádeginu en það var allt lokað og ekkert tekið fram um opnunartíma… :/

    • Svart á Hvítu

      5. July 2013

      Þær segja á fb síðunni sinni frá 10-16, einhver hefur eflaust skroppið frá í hádeginu, en ég er viss um að þú fáir að kaupa það á tilboðsverði ef þú kemst ekki aftur í dag. Það þætti mér allavega eðlilegast:)
      Ég myndi senda þeim línu á facebook, https://www.facebook.com/tulipop?fref=ts

      • Tinna

        5. July 2013

        Ėg fór 2 fýlu ferðir þangað í dag kl 11 og svo aftur kl 2

        • Svart á Hvítu

          5. July 2013

          Mér þykir þetta ótrúlega leiðinlegt, ég fékk þær upplýsingar að tilboðið væri út vikuna, en sendi svo fyrirspurn á tulipop eftir þessi komment frá ykkur og nokkra tölvupósta og fékk þá svar að það væri sumarfrí í dag og á mánudag.
          Vonandi er hægt að leysa úr þessu ef þið sem komuð að tómum kofa sendið þeim bara línu:)

  2. Tulipop

    8. July 2013

    Okkur þykir hræðilega leiðinlegt að þið hafið komið í fýluferð á Hverfisgötuna!
    Verðum við út alla vikuna frá 10-16. Skreppum stundum frá í hádegismat milli 12-13!

    Plakötin verða á tilboði fyrir ykkur út þessa viku líka :)

    Með kærri kveðju
    Tulipop

  3. TULIPOP

    8. July 2013

    Æ en leiðinlegt!!
    Við verðum á Hverfisgötunni út alla þessa viku frá 10 – 16, stundum lokað í hádeginu milli 12 -13.
    En tilboðið stendur líka út þessa viku :)

    Kær kveðja
    Tulipop