fbpx

NÝ VEFVERSLUN : HJARN.IS

Fyrir heimiliðVerslað

Ég hef ætlað í langan tíma að skrifa um vefverslunina Hjarn.is, hún bættist við flóru íslenskra vefverslanna fyrr í sumar mér til mikillar gleði, en ég hreinlega elska það hversu skemmtilegt það er orðið að versla á netinu hér heima:)

Verslunin býður upp á allskyns fallegar vörur fyrir heimilið og garðinn, púða, plaköt, keramík, kertastjaka, vegglímmiða og svo margt margt fleira. Ásamt því að halda úti vefverslun er einnig hægt að skoða vörurnar frá Hjarn í nýju versluninni UniKat sem opnaði nýlega á horni Frakkastígs og Laugavegs, -það er alveg efni í sérfærslu þó:)

Ég tók saman nokkrar af mínum uppáhaldsvörum svo að þið gætuð séð úrvalið,

Kertin frá hollenska hönnunarteyminu Ontwerpduo eru á óskalistanum.

Screen Shot 2014-08-28 at 2.26.05 PM

Púðar frá House of Rym, algjör draumur.

10446004_1669064186651092_8972553313930185096_n

Tímaritahillur frá Maz Interior, líka til í kopar.

10505384_1646274075596770_2300297582193423888_n

Þessar Babou vegghillur eru sérstaklega flottar, virka vel í svo mörg rými. Systir mín fékk sér um daginn bláa í barnaherbergið sem kemur mjög vel út:)

10524357_1653363581554486_5923000025007650048_n

Demantaljós, hver þarf ekki á slíku að halda?;)

Plaköt frá One must dash, þessi hefur maður rekist á svo oft á erlendum hönnunarbloggum.

Og svo síðast en ekki síst þessir fallegu vegglímmiðar frá Forest friends, -æði fyrir barnaherbergið!

hjarn

Og svo að lokum óskalistinn minn! Það má jú alltaf leyfa sér að dreyma:)

– Koparhilla fyrir tímarit – töff kerti – skál – marmarakökukefli – geómetrískur púði – vasi – kertastjaki –

Hjarn.is, -tékkit! – hér má svo finna facebook síðuna þeirra:)

 

BLEIKT GERIR ALLT BETRA...

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Tinna

    28. August 2014

    Og ekki skemmir fyrir hvað hún Elena er ótrúlega almennileg, þvílíkt gaman að versla hjá henni. Stelpurnar í Unikat eru allar frábærar með æðislegar vörur :)

  2. Kristbjörg Tinna

    1. September 2014

    Ég er alveg sjúk í marmara kökukeflið!