fbpx

Nettímarit

Umfjöllun


Það er ekkert skemmtilegra en að fá að skoða flott tískutímarit og það ÓKEYPIS.
Miðað við verðlag á tímaritum nú til dags er ég snarhætt að versla þau en sest frekar á bókakaffihús og glugga í þau þar eða skoða þau á netinu.

Fyrir stuttu þá kom á netið nýtt íslenskt tískutímarit sem heitir Nude. Það eru flottar stelpur sem sjá um tímaritið en svo eru einnig tveir strákar með þeim í liði sem sjá um kvikmyndagerð og ljósmyndun. Í apríl hrepptu þau 3. sætið í frumkvöðlakeppni Innovit, Gullegginu og eru vel af þeim verðlaunum komin.
Frábært framtak og þetta er eitt flottasta íslenska tímaritið!


Hægt er að skoða tímaritið HÉR

Svo les ég líka alltaf HM tímaritið og það fer batnandi með hverju tölublaði. Núna leggja þau meiri áherslu á áhugaverðar greinar heldur en bara ljósmyndir af nýjum flíkum.
Getið lesið það HÉR
P.s. mér þykir þessi hálmen ofsalega falleg.

Svo er kannski í lagi að benda ykkur líka á Asos tímaritið sem ég skoða líka reglulega.

En þar er oft rætt við tískubloggara og farið yfir nýjustu straumana í tísku.
Hægt að skoða það HÉR.

Enjoy

-S

Pip Studio

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Anonymous

    13. May 2010

    næs!!

  2. Sara

    13. May 2010

    Frábært framtak hjá þeim með Nude blaðið! Ótrúlega gaman að lesa það :)
    xx

  3. hilbb

    13. May 2010

    mjög næs að geta skoðað tískublöðin frítt þegar þau eru orðin svona fáranlega dýr :) fyrir utan þessi skoða ég líka oft Fashionista sem danska blaðið Costume er með.
    Hægt að skoða hér: http://costume.dk/fashionista

  4. Edda Sif

    13. May 2010

    This comment has been removed by the author.