Ég á von á einni af mínum allra uppáhalds vinkonum heim á klakann í lok vikunnar en hún hefur verið búsett síðustu 10 árin eða svo í Danmörku. Ég blikka hana venjulega til að kippa ýmsum nauðsynjum úr H&M handa mér en oftast er það eitthvað sem kemst auðveldlega ofan í töskuna. Ég kíkti aðeins á H&M heimasíðuna í kvöld og týndi eitt og eitt ofan í körfu fyrir Bjart en svo slysaðist ég alveg óvart til þess að skoða ‘home’ flokkinn og gleymdi mér smávegis. Eigum við eitthvað að ræða hvað þessar mottur eru tjúllaðar?
Hér má sjá fleiri fallegar mottur frá H&M.
Ég geri mér ekki nógu vel grein fyrir hversu mikið töskupláss þessi efsta myndi taka, en ég eiginlega verð að eignast hana fyrir anddyrið. Hún er tjúlluð! Núna þarf ég að finna eitthvað mjög djúsí til að múta vinkonu minni með:)
Skrifa Innlegg