Ég elska þegar mörgum römmum er tillt upp við vegg saman, margar stærðir og sumir sem fara fyrir aðra.
-Ég hef svo innilega ekkert að gera í kvöld nema að hanga á netinu og blogga og finna hugmyndir fyrir heimilið haha, það er aðeins of leiðinlegt að vera veik!
Hér eru 2 myndir frá heimilinu mínu, er búin að vera í því að raða hlutum upp á nýtt hér heima, -hvað gerir maður ekki þegar manni leiðist:)
Plagatið að ofan er í uppáhaldi hjá mér og er frá Scintilla, og fíllinn finnst mér vera sætasta bókastoð í heimi, en hann fékk ég nýlega:)
Skrifa Innlegg