fbpx

MARKAÐUR Á KEX : MÍNIR HLUTIR

Persónulegt

Það fór vonandi ekki framhjá ykkur að á morgun er markaður Trendnets á KEX á milli kl.12-18.

Ég ætlaði mér nú alls ekki að vera með en þurfti bara rétt að líta inn í geymsluna til að átta mig á að ég á alltof mikið af hlutum.

Hér er bara pínlítið brot af heildinni. T.d. HAY púðinn (hef verið beðin 3x um að selja hann fyrir markaðinn, p.s. hann verður augljóslega ekki á slikk), Tam Tam silfurkollur, 5 arma viðarkertastjaki, SKULL handklæði (ónotað), 2X mjög flott sturtuhengi frá H&M, er einnig með 2x kögurhengi eins og sést á einni myndinni (enn í pakkanum). Og svo Buffaló hauskúpan mín sem ég sel á það sama og ég keypti hana á í sumar, 20 þús.

Svo má líka nefna bleiku Karlsson eldhúsklukkuna mína, Hoch die Tassen glös eftir Hrafnkel Birgisson, myndir á veggi, glös, vasa og margt fleira!

Einnig verð eg með um 40 skópör (nota númer 39) og föt líka, þar má nefna pels, hvíta aðsniðna Nike úlpu, leðurpeysur og annað fínerí. Fötin eru án gríns í stærðum 36-42, haha. En öll vel með farin og flott:)

Sjáumst vonandi á morgun

-Svana

VINNINGSHAFINN Í JÓLALEIKNUM

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Alexandra

    21. December 2013

    afhverju ertu að selja þennan fallega fallega púða! don´t do it!

    • Svart á Hvítu

      21. December 2013

      Hahaha æj ég á alltof marga púða… og á líka annan HAY dot púða:)
      Hef líka ekki notað hann í marga mánuði.. en að sjálfsögðu ef ég fæ ekki sanngjarnt fyrir hann þá fylgir hann mér bara aftur heim:)
      -Svana

  2. Halla

    21. December 2013

    Ég bý út á landi og kemst því ekki á markaðinn, er séns að kaupa sturtuhengið í gegnum email? :) mér “bráðnausynlega” vantar það og það er búið að vera uppselt i H&M i marga mánuði. Mátt endilega senda mér email ef það er möguleiki :)

    • Svart á Hvítu

      21. December 2013

      Hæhó, það seldist strax og markaðurinn opnaði, því miður, var ekkert búin að vera við tölvu!

  3. Gabríela

    21. December 2013

    Verðið þið með posa eða á maður að taka pening með?

    • Svart á Hvítu

      21. December 2013

      Sorry var bara að komast í tölvu núna, … vonandi náðiru að kíkja við!

  4. Júlía

    21. December 2013

    Hvað ætlaru að selja púðann á ? :P og hvað kostar hann í epal annars ?

  5. Stefania

    21. December 2013

    Er Tam Tam kollurinn seldur? Ef ekki, hvað viltu fá fyrir hann?