Í dag er mánudagur í tíunda veldi á mínum bæ, í dag var nefnilega sjöundi dagur veikinda hjá mér og þá mega konur fá að kvarta, sérstaklega þar sem að sonurinn var meira og minna veikur allan síðasta mánuð. Á morgun er ég þó með plön og því skal blessuð flensan hafa yfirgefið mig þegar ég vakna fersk í fyrramálið. Á morgun verður einnig skemmtilegur gjafaleikur í samstarfi við Kokku svo ég mæli með að kíkja við og taka þátt, ásamt því að ég er komin með nýjar fréttir af íbúðinni hjá Örnu og Sigvalda sem ég ætla að deila með ykkur! Þið verðið því að afsaka mig í kvöld með innihaldslítilli færslu en þessi orð töluðu svo til mín á Pinterest flakki kvöldsins að ég ákvað að deila þeim.
Stundum er Pinterest besta “þerapían” sem völ er á, þannig er það bara. Ég kem sterk aftur til leiks á morgun, búin með flensuna fyrir næstu árin eða það ætla ég að vona. Þangað til næst!
Skrifa Innlegg