fbpx

LITAKÓÐAÐ LÍF Á INSTAGRAM?

Heimili

Eins mikið og ég elska instagram og ég sæki mikið þangað í leit af bloggefni þá velti ég því stundum fyrir mér hvernig margir virðast -útfrá myndunum- eiga líf sem er allt í sömu litunum eða leggja að minnsta kosta mikinn metnað í að láta það líta þannig út. Allt heimilið, fatnaður og oft á tíðum líka maturinn er allt í sömu litatónum sem er mér nánast óskiljanlegt. Ekki misskilja mig, mér þykir þetta afskaplega smart og mjög fallegt fyrir augað og ég veit líka að það er augljóslega búið að setja filter á myndirnar en þið hljótið að sjá það sem ég á við á myndunum hér að neðan, við erum að tala um svartan, gráan, hvítan, brúnan og gylltan og engar undantekningar. Þessar myndir eru frá einni af mínum uppáhalds instagram síðum, frá henni Alejandrino Bessobberto smekkkonu mikilli, ég er þó að fylgja mörgum á instagram sem falla undir þennan sama flokk. Helsta spurningin sem ég spyr mig er þó “fær þetta fólk aldrei gjafir” haha? Því guð má vita að margar gjafir sem við fáum fyrir heimilið eða fyrir börnin okkar passa ekkert endilega inní okkar fyrirframmótuðu hugmyndir hvernig heimilið skuli líta út eða í hvaða litum það skal vera, hvað þá fatnaður barnsins:) En þrátt fyrir þetta þá er útkoman falleg því er ekki að neita…
Screen Shot 2016-01-13 at 12.30.30 Screen Shot 2016-01-13 at 12.33.48 Screen Shot 2016-01-13 at 12.33.23 Screen Shot 2016-01-13 at 12.32.01Screen Shot 2016-01-13 at 12.34.52Screen Shot 2016-01-13 at 13.25.13Screen Shot 2016-01-13 at 13.25.00Screen Shot 2016-01-13 at 13.24.26Screen Shot 2016-01-13 at 13.24.13Screen Shot 2016-01-13 at 13.24.01Screen Shot 2016-01-13 at 13.23.31Screen Shot 2016-01-13 at 13.22.23Screen Shot 2016-01-13 at 13.21.37Screen Shot 2016-01-13 at 13.21.09Screen Shot 2016-01-13 at 13.20.45 Screen Shot 2016-01-13 at 12.29.21Screen Shot 2016-01-13 at 12.30.36Screen Shot 2016-01-13 at 12.31.41 Screen Shot 2016-01-13 at 12.30.30 Screen Shot 2016-01-13 at 12.30.01 Screen Shot 2016-01-13 at 12.28.43 Screen Shot 2016-01-13 at 12.28.33 Screen Shot 2016-01-13 at 13.21.50Screen Shot 2016-01-13 at 12.28.25

 Myndir via @alejandrina_bessoberto

Það sem mér finnst sérstaklega skemmtilegt við síðuna hjá Alejandrinu er allt þetta fallega smádót sem hún veitir athygli og fáar myndir af stærri rýmum. Þetta er auðvitað mjög vinsælt á instagram að hafa vissan stíl á öllu efninu sem þangað fer inn en ég veit þó fyrir víst að það væri mjög erfitt fyrir mig að ná að halda öllum myndum sem ég tek af mínu lífi innan svona ramma:)

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111

NÝTT: OMAGGIO VASI MEÐ PERLUÁFERÐ

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Sigrún

    14. January 2016

    Já þetta er allt mjög fallegt fyrir augað, en glætan að ég myndi nenna að búa þarna!

  2. Lára

    15. January 2016

    Góður punktur !! Ég spái oft í þessu líka með gjafirnar, mjög falleg heimili en minna mig oft á sýningarsal frekar :)

    • Svart á Hvítu

      16. January 2016

      Og líka bækur og tímarit? Ekki eru þau nú alltaf í hlutlausum lit eða gyllt haha…

  3. Elfa

    15. January 2016

    Það er eingöngu hægt að borða svarthvíta djöflatertu á þessi heimili…alls ekki jarðaberjatertu. Fallegt …en býr einhver svona ? held ekki

    • Svart á Hvítu

      16. January 2016

      Hahahah já það þarf að vanda valið vel þegar kemur að mat þarna….