fbpx

LATELY….

Persónulegt

Það er aldeilis kominn tími á nokkur orð hingað inn en ég var svo hrikalega óheppin að næla mér aftur í flensuna því ég fékk greinilega ekki nóg af henni fyrir um mánuði síðan. Tímasetningin var síðan ekki betri en það að ég missti af HönnunarMars fyrir utan 3 opnanir sem ég rétt náði, en það þýðir ekkert að svekkja sig á því, ég hef séð mikið af myndum og hátíðin var greinilega mjög vel heppnuð í ár:) Ég er hinsvegar búin að plana sólarferð fyrir okkur fjölskylduna eftir nokkrar vikur sem ég get ekki beðið eftir, en ég og sonurinn ætlum að drekka í okkur öll þau D-vítamín sem við getum til að ná þessum flensuskít úr okkur fyrir fullt og allt. En nóg um væl í mér, innblástur kvöldsins er í boði Pinterest, eins og svo oft áður;)

Ég vona að það muni rætast úr vikunni minni en það er nóg af verkefnum framundan sem þarf að sinna eftir veikindafrí. Núna er ég búin með skammtinn minn fyrir næstu árin, það bara hlýtur að vera! Koma svoooo…;)

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111

HÖNNUNARMARS: DAGUR 3

Skrifa Innlegg