fbpx

KVENLEGUR STÍLL

HeimiliPersónulegt

Hönnuðurinn og teiknarinn Sarah Illenberger býr í þessari íbúð í Berlín.

Þetta er frekar gamalt innlit en það breytir því þó ekki að það er dásamlega fallegt, kvenlegur stíll er allsráðandi á þessu heimili, fallegir litir og einstakir hlutir. Mikið eru glerkúplarnir og myndaveggurinn æðislegur. myndir via Freunde von freunde.

Ég hinsvegar var að skila af mér H&H blaði í prentun í dag, því hefur lítið verið að ske hér undanfarna 2 daga.

Mig langar reyndar að koma einu á framfæri því að undanfarnar vikur/mánuði hafa mér borist gífurlega margir tölvupóstar, sem ég hef svo innilega gaman að, en það getur komið fyrir að það tefjist að svara þeim. Flestir þeirra eru varðandi innanhúss-ráð, hvar hitt og þetta fæst ásamt spurningum frá a-ö varðandi hönnun og heimili. Stelpurnar í vinnunni nefna einmitt reglulega “hvað það er gott að fletta upp í hausnum á mér…” s.s. þið ykkar sem enn eruð að bíða eftir svari, bíðið róleg, ég er að reyna að ná utan um þetta:)

-Svana

CHAIR ONE

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Elísabet Gunn

    31. January 2013

    Skemmtilegt heimili. Margir fallegir hlutir. Mig langar í þessa sætu gíraffamynd á minn vegg.

    Hlakka til að sjá nýtt H&H. Duglega kona !!

    knús xx

  2. G

    31. January 2013

    Bíð alltaf spennt eftir nýrri færslu frá þér og búin að fylgjast með þér í nokkur ár;)

    • Svart á Hvítu

      1. February 2013

      Takk kærlega fyrir það:) Er að koma mér í þetta núna:)