fbpx

KronbyKronKronKron

Íslensk hönnun

Þeir sem ekki þekkja tískubloggarann Tavi, ættu að kíkja við á bloggsíðunni hennar HÉR

Hún er frábær penni, aðeins 14 ára gömul og er á hraðri uppleið í tískuheiminum, ég byrjaði fyrst að fylgjast með henni fyrir u.þ.b einu og hálfu ári en til að byrja með átti ég erfitt með að trúa því að 12 ára barn væri að skrifa þessi blogg sem ég hló svo mikið yfir. Í dag er ég þó orðin sannfærð um að hún Tavi er algjör snillingur, hún mætir á allar mikilvægustu tískusýningarnar og situr á fremsta bekk ásamt henni Anna Wintour ritstjóra Ameríska Vogue

Hún fær send föt og fylgihluti frá ýmsum hönnuðum sem vilja endilega að hún birti myndir á sínu fjölsótta bloggi, sem fær mörg hundruð þúsund heimsóknir á dag.

Í dag var hún greinilega búin að fá þessa fínu KronKron skó… alla leið frá fagra Íslandi:)

Hún var mjög hrifin af skónum en nefndi þó að hún velji sér frekar skó þar sem platforminn er í samræmi við aðra liti hahah.

Þar er ég nú mjög sammála henni:)

sniðugir fatahankar

Skrifa Innlegg