Þrír hlutir sem ég keypti mér í dag, ég neita þó ekki fyrir það að hlutirnir eru fleiri en þetta í pokanum, en þessir standa uppúr.
H&M strigaskór – þessir verða mikið notaðir í vor.
20 private wohnträume – uppáhalds þýska blaðið mitt, og líklega það eina sem Heidi Klum var ekki framan á!
Hálsmen frá Urban Outfitters, akkúrat fyrir ári síðan keypti ég mér í sömu búð hálsmen með þríhyrning á sem ég hef ofnotað (sjá mynd hér að ofan) núna verður það hringur!;)
Þetta er bara fyrsta færslan í kvöld… ég hef nefnilega ekki mikið að gera. Ég var búin að gleyma því að þjóðverjar talsetja allt sjónvarpsefni!
-Svana
Skrifa Innlegg