Ég vona að flest ykkar séuð búin að þessu helsta sem þarf að gera fyrir jólin og getið því notið dagsins stresslaus og í kósíheitum. Dagurinn minn fer í innpökkun og smá bæjarrölt þó að allar gjafir hafi verið keyptar. Það er bara eitthvað svo notalegt að fara út og hitta fólk á þessum degi, allir í svo miklu hátíðarskapi og margir á stjá:) Ég tók saman nokkrar myndir ef ykkur vantar hugmyndir af innpökkun, ég er sérstaklega hrifin af því að skreyta pakkana með jólalegum myndum en þær má m.a. finna á Pinterest, einnig er fallegt að skreyta pakkana með smá greni eða útklipptum pappírssnjókornum, sjá leiðbeiningar -hér.
Njótið dagsins!
Skrifa Innlegg