fbpx

jóla hvað?

Hönnun
Þetta þykir mér mjög skemmtilegt.
Kökuform eftir Konstantin Slawinski, keypti mitt í dag í Búsáhöld Kringlunni á 2.995, en það er selt í Kokku á 4.500krónur!
Eða ekki mitt reyndar, fær að rata í einn pakkann haha

Svo eru þessir bollar eftir Hrafnkel Birgisson alltaf jafn flottir, fást á Birkilandi t.d.


Gæti alveg hugsað mér að drekka heitt kakó úr þeim mmm..
Þetta veski er frá Hidden Goods very very næs, fæst á Birkilandi.

Svo kom mín elskulega systir heim með veski handa mér í gær, en það er unnið af Listaháskólanum ásamt HR í samstarfi við Örva sem er verndaður vinnustaður.
Veskið er glært úr plasti með Íslandi á annari hliðinni þrykkt í.
Finn því miður ekki mynd á netinu. Skelli kannski af mínu ef ég man hmmm

Svo kemur jólasveinninn í nótt, eða hjá mér allavega.
Er ég nokkuð sú eina sem fæ enn frá Kertasníki?
Minn er voða mikill smekkmaður, gefur mér oft jólanærföt svo ég endi nú ekki í jólakettinum.

-S

23.desember

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. inga

    23. December 2009

    úú flott kökuform… ég bíð spennt ;) og veskið awesome

  2. Aslaug

    25. December 2009

    Kertasníkir var líka góður við mig. Hann gaf mér maskara, varalit, nærföt og prinsessuhandklæði. Ferlega dúllulegt allt saman! :D