Danska hönnunarmerkið HAY hefur nú sameinað krafta sína við íslenska samtímalistamanninn Loja Höskuldsson í tilefni þess að norræni listaviðburðurinn CHART art fair stendur yfir í Kaupmannahöfn um helgina.
Loji útbjó æðislegt útsaumað listaverk úr 10 metra löngum Mags sófa frá HAY og ber verkið heitið “The aftermath of a garden party”. Má þar meðal annars sjá íslenskan Opal á sófaarminum ásamt dönskum klassíkum á borð við Faxe Konde og Gammel Dansk. Loji hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir listaverk sín sem einkennast af hefðbundum útsaumi á nútímalegan hátt.
Einstakt íslenskt – danskt listaverk!
Skrifa Innlegg