fbpx

ÍSLENSKT HEIMILI

Heimili

Þessi fagra íbúð í Stokkhólmi er til sölu, en þarna fékk ég og vinkona mín að gista hjá yndislegri íslenskri fjölskyldu fyrr á árinu þegar ég fór á hönnunarsýninguna þar í borg. Eftir að ég kom heim þá sá ég strax eftir því að hafa ekki beðið um leyfi að fá að smella af nokkrum myndum af íbúðinni fyrir bloggið mitt, en húsfreyjan er mikill fagurkeri eins og sést á þessum myndum.

Frábær hugmynd að mála ekki heilann vegg, heldur stórann kassa sem rammar t.d málverk flott inn.

‘Heima er best’

Flottar String hillur í svefnherberginu, og falleg kamínan.

Ótrúlega fallegt.

Horft að utan, æðisleg staðsetning líka.. á Götgötunni sjálfri!
Huggulegt ekki satt? 

SUNNUDAGS

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    3. September 2012

    SVO huggulegt hjá líka fallegri fjölskyldu. Ég vildi óska þess að hún væri stærri. Þá myndi ég kaupa ! :)

  2. Margrét

    3. September 2012

    Ótrúlega falleg íbúð!
    Alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)

  3. Eigandinn :-)

    3. September 2012

    Takk fyrir falleg orð stelpur mínar. Þú verður svo bara að koma líka í heimsókn í næstu íbúð Svana mín!

  4. Dagný Björg

    4. September 2012

    Elska skipulagið á þessari íbúð! :D Ótrúlega fallegt :)

  5. fatou

    4. September 2012

    Svo falleg!