Mér finnst þessi mynd vera svo krúttleg að mig langar til að deila henni með ykkur:) Smekkkisinn minn er s.s. búinn að taka ástfóstri við annan púða en HAY púðana mína, í þetta skiptið varð Umemi fyrir valinu.
Á myndinni má líka sjá nýju rúmfötin mín sem ég fékk úti í Amsterdam í H&M Home, fallegt kaðlamynstur sem mér þótti vera svo vetrarlegt og fallegt. Það eina sem ég hugsa reyndar um núna er að kúra undir sæng en í staðinn þarf ég að vinna frameftir…
Skrifa Innlegg