fbpx

IKEA SVARTAN: ÓSKALISTINN

Ikea

Ég verð reglulega spennt fyrir væntanlegum vörum hjá Ikea og þessa stundina bíð ég eftir SVARTAN línunni sem er afar smart. Það voru að detta inn nýjar myndir af vörunum og þá er hægt að byrja á því að raða niður á óskalistann, ég er búin að vera að leita að nýju stofuborði í langan tíma og borðið í Svartan línunni lúkkar virkilega vel þó svo að ég átti mig ekki nógu vel á stærðinni á því.

Línan er mjög gróf og að sjálfsögðu öll svört eins og nafnið gefur til kynna. Sængurfötin í línunni eru einnig komin á óskalistann minn, mjög töff. Línan kemur úti í verslanir í september en við gætum þurft að bíða aðeins lengur. P.s. svo rakst ég mjög óvænt á nýjung hjá þeim á netvafri mínu en það er Ikea hjól! Svört gjörðin með hvítum dekkjum og ljósum hnakki og stýri! Hversu smart! Ég get þó ekki staðfest hvað kemur til landsins, en ég krossa fingur xx

 

GubiBike1

 

Þú ert að standa þig vel elsku Ikea…

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111

SUMARKVÖLD

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hrefna Dan

    23. July 2016

    VÁ… þetta borð er drauma og línan sjálf er mega spennandi.
    September komdu fljótt!!

  2. Birna Helena

    4. August 2016

    Ég held að borðið sé 73 í þvermál en ég átti mig ekki á því hvað það er hátt, mér finnst td hringlaga borðið úr Stockholm seríunni of lágt sem stofuborð.