fbpx

IKEA 2014

Ikea

Spenningurinn fyrir haustinu eykst með hverjum deginum… ekki bara öllum kósýheitum sem því fylgir heldur fyllast allar verslanir líka af nýjum og fallegum haust/vetrarlínum og þá er ekki annað en hægt að verða spennt! Ég vona að ég sé ekki ein um það en ég fékk fiðring niður í maga þegar ég fletti áðan í gegnum nýja Ikea 2014 bæklinginn sem var rétt í þessu að koma út á netinu. Ég bíð alltaf með eftirvæntingu eftir þessum tíma, svona örlítið eins og jólin séu að koma:)

Þessi mynd er mín allra uppáhalds í öllu blaðinu, svartir veggir í eldhúsi eru ótrúlega fallegir. Sérstaklega eins og á þessari mynd hvernig hann er notaður á bakvið hillurnar og skapar þá meiri dýpt og andstæður.

Stílistar og innanhússhönnuðir Ikea vinna hörðum höndum allt árið að undirbúa bæklinginn og það er gaman að skoða öll litlu detailin á myndunum, algjör gullmoli sem þessi bæklingur er fyrir innanhússperra.

HÉR er hægt að skoða bæklinginn í heild sinni, njótið!

KÓSÝ

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Rut R.

    18. July 2013

    Lýst vel á mjög margt þarna :)

  2. SigrúnVíkings

    20. July 2013

    Þetta verður “lesning” kvöldsins :)

  3. Irmý

    24. July 2013

    Gaman að vita af fleirum sem bíða spenntir eftir útgáfu Ikea bæklingsins ár hvert :)