Hæ! Vildi bara skilja eftir nokkrar línur í dag þar sem ég er stödd í Frankfurt á hönnunarsýningunni Ambiente! Þetta er ein stærsta sýning í heiminum og í raun mætti tala um að hér mætist heimurinn á einni og sömu sýningunni sem skipt er niður í 11 risa stórar hallir og nokkur þemu, Living, Giving og Dining. Ég á mínar uppáhaldshallir sem ég reyni að sjá sem mest af en hér eru kaupendur frá öllum heimsins hornum enda afar virt sýning.
Ég er búin að eyða deginum í endalaust labb að skoða allt það nýjasta í hönnun og gjafavöru, ég ætla að taka saman allar myndirnar sem ég hef tekið í eina stóra færslu. Það sem stóð uppúr í dag var m.a. básinn hjá Stelton sem var virkilega fallegur og nokkrar sem mig dreymir um að eignast. Eigum við eitthvað að ræða þessa dásamlegu EJ ljósbleiku hitakönnu?
Þessi bleiki litur er alveg dásamlegur.
Meira síðar! x
Skrifa Innlegg